Ingibjörg Sigurðardóttir, varnarmaður Valerenga, er tilnefnd sem besti leikmaður tímabilsins í norsku úrvalsdeildinni.
Julie Blakstad og Cesilie Andreassen, leikmenn Rosenborg, eru einnig tilnefndar.
Ingibjörg hefur verið frábær í vörn Valerenga á tímabilinu en liðið er á toppnum fyrir lokaumferðina á sunnudag.
Liðið er með fjórum mörkum betri markatölu en Rosenborg.
Hin 23 ára gamla Ingibjörg er fastamaður í íslenska landsliðinu sem tryggði sér sæti á EM í vikunni.
Athugasemdir