Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 04. mars 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Elíza Gígja gerir tveggja ára samning við Víking
Mynd: Víkingur
Víkingur Reykjavík hefur gengið frá tveggja ára samningi við Elízu Gígju Ómarsdóttur

Elíza Gígja, sem fædd er 2003, tilheyrir sigursælustu árgöngum stúlknaliðs Víkings frá upphafi vega, en árgangar 2001-2003 sópuðu að sé verðlaunum upp í gegn alla yngri flokka.

Elíza var í 5. fl. 2014, þegar Víkingur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í þeim flokki í fyrsta sinn og var í A-liðinu þegar liðið endurtók leikinn 2015. Hún var svo í B-liði 4. fl. þegar það lið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í þeim flokki 2016 og í A-liði ári seinna þegar Víkingur var Íslandsmeistari bæði A- og B-liða í fyrsta sinn. Árin 2016 og 2017 spilaði hún einnig nokkra leiki með 3. fl., sem varð Íslandsmeistari bæði árin. Hún varð einnig margfaldur Reykjavíkurmeistari upp í gegn um yngri flokka.

Elísa Gígja spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki með Víking á Reykjavíkurmótinu vorið 2020 og fyrstu leiki á Íslandsmóti þá um haustið. Alls á hún skráða fimm leiki fyrir meistaraflokk.

„Það er Víkingum kappsmál að þeir sigursælu árgangar sem Elíza Gígja tilheyrir myndi hryggjarstykki meistaraflokks næstu árin og því er þessum samningi við hana fagnað innilega," segir í tilkynningu Víkings.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner