Levante 1 - 2 Athletic
1-0 Roger Marti ('17 )
1-1 Raul Garcia ('30 , víti)
1-2 Alex Berenguer ('112 )
1-0 Roger Marti ('17 )
1-1 Raul Garcia ('30 , víti)
1-2 Alex Berenguer ('112 )
Athletic Bilbao er komið í úrslitaleik spænsku bikarkeppninnar eftir sigur á Levante í framlengdum leik í kvöld.
Staðan eftir fyrri leikinn var 1-1 og var Levante yfir á útivallarmörkum. Þeir tóku forystuna eftir 17 mínútur en Bilbao náði að jafna metin úr vítaspyrnu þegar hálftími var liðinn af leiknum.
Fleiri urðu mörkin ekki í venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja.
Í framlengingunni skoraði Alex Bergenguer sigurmark Bilbao og því mæta þeir Barcelona í úrslitum. Bilbao á enn eftir að spila í úrslitaleik síðasta tímabils en hann fer fram núna fram 3. apríl. Bilbao mætir þar Real Sociedad en honum var frestað út af kórónuveirufaraldrinum.
Bilbao mætir svo Barcelona í úrslitaleik þessa tímabils þann 17. apríl.
Athugasemdir