Guðmann Þórisson er hættur í fótbolta eftir langan og farsælan feril í íslenska boltanum með viðkomu í Nybergsund og Mjällby.
Guðmann er uppalinn hjá Breiðabliki en lék lengst af fyrir FH og einnig KA og Kórdrengi.
Hann var fyrirliði hjá Kórdrengjum í fyrra og spilaði 17 leiki í Lengjudeildinni en árin þar á undan var hann leikmaður FH og KA í efstu deild.
Guðmann er 36 ára gamall og lék einn A-landsleik á ferlinum eftir að hafa spilað 15 leiki fyrir yngri landsliðin.
Athugasemdir