Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 04. mars 2023 16:18
Brynjar Ingi Erluson
Valgeir í 8-liða úrslit - Hjörtur hjálpaði Pisa að ná í stig
Valgeir Lunddal er kominn í 8-liða úrslit
Valgeir Lunddal er kominn í 8-liða úrslit
Mynd: Guðmundur Svansson
Valgeir Lunddal Friðriksson og hans menn í sænska meistaraliðinu Häcken eru komnir áfram í 8-liða úrslit sænska bikarsins eftir 2-1 sigur á Halmstad í dag.

Íslenski varnarmaðurinn spilaði allan leikinn í vörn Häcken og hjálpaði liði sínu að komast áfram en liðið vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppni bikarsins.

Framundan eru því 8-liða úrslit bikarsins en Häcken er þriðja liðið sem kemst þangað ásamt Djurgården og Mjällby.

Fylkismaðurinn Hjörtur Hermannsson kom þá inná sem varamaður í hálfleik er Pisa gerði 1-1 jafntefli við Palermo. Pisa er í 6. sæti ítölsku B-deildarinnar með 42 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner