Sóknarmaður Borussia Dortmund, Jadon Sancho, ásamt öðrum leikmönnum Bundesliga sem mótmæltu morðinu á George Floyd verður ekki refsað fyrir framkomu sína um liðna helgi.
Sancho fagnaði með því að klæða sig úr treyju sinni og sýndi skilaboð á bolnum sem hann var í. Réttlæti fyrir George Floyd stóð á bolnum sem Sancho sýndi eftir að hafa skorað gegn Paderborn.
Sancho fagnaði með því að klæða sig úr treyju sinni og sýndi skilaboð á bolnum sem hann var í. Réttlæti fyrir George Floyd stóð á bolnum sem Sancho sýndi eftir að hafa skorað gegn Paderborn.
Achraf Hakimi, liðsfélagi Sancho, var einnig í bol með sömu skilaboðum. Weston McKennie, hjá Schalke, var með armband með svipuðum skilaboðum og Marcus Thuram fagnaði með því að 'taka hné' og heiðraði þar með minningu Floyd.
„Við verðum öll að neita rasisma eða hvers kyns mismunun," sagði Gianni Infantino, forseti FIFA, á þriðjudag.
Athugasemdir