Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
banner
   fim 04. júní 2026 10:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Geðveikt að fylgjast með Tomma, erum mjög góðir félagar og hann á þetta mjög mikið skilið"
Tómas Óli var í hlutverki hjá AGF á tímabilinu.
Tómas Óli var í hlutverki hjá AGF á tímabilinu.
Mynd: AGF
Sölvi Stefánsson.
Sölvi Stefánsson.
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke
AGF varð danskur meistari í vor í fyrsta sinn í 40 ár, titillinn sá sjötti í sögu félagsins. Sölvi Stefánsson var á samningi hjá AGF en miðvörðurinn ungi hafði gert sér vonir um að vera nálægt aðalliðinu á tímabilinu. Hann hins vegar meiddist á hné fyrir um ári síðan og hefur ekki spilað fótbolta síðan.

Sölvi ræddi við Fótbolta.net um lífið í Danmörku.

„Þessi þrjú ár í Danmörku voru frábær, þetta er frábær klúbbur með frábæra stuðningsmenn og frábæra aðstöðu. Árin voru mjög lærdómsrík, ég flutti ungur út og það var leiðinlegt að þetta síðastliðna ár hafi þurft að litast af þessum meiðslum, en ég sé ekki eftir neinu," sagði Sölvi.

„Danirnir eru skemmtilegir, toppfólk, mjög faglegt allt hjá AGF. Það var geðveikt að fylgjast með þessu tímabili, ég hefði ekki trúað þessu fyrir tímabilið, byrjaði mjög illa og síðustu tvö tímabil höfðu verið miðlungs. Við fengum nýjan þjálfara og hann hefur náð að kveikja aðeins í mönnum því þetta var næstum því sami hópur og árið á undan. Bara frábært og klúbburinn á þetta svo sannarlega skilið, sérstaklega stuðningsmennirnir."

Sölvi er fæddur árið 2007 og er búinn að semja við Víking um að vera þar næstu tímabilin. Tómas Óli Kristjánsson er árinu yngri en hann var í hlutverki hjá dönsku meisturunum í ár.

„Það var geðveikt að fylgjast með honum, ég og Tommi erum mjög góðir félagar og vorum herbergisfélagar á heimavistinni hjá AGF. Hann er frábær leikmaður og á þetta mjög mikið skilið. Það kom mér á óvart hversu mikið hann spilaði, en hann var góður þegar hann fékk tækifæri, sérstaklega góður á móti Viborg í síðasta leiknum, kom inn og skoraði tvö mörk. Hann er geggjaður."

„Það var geðveikt að fylgjast með stemningunni í kringum titilfögnuðinn, ég hef aldrei séð annað eins, allt í borginni snýst um AGF. Ég hélt að borgin myndi fara á hliðina, þetta var rosalegt,"
sagði Sölvi. Viðtalið í heild sinni má nálgast hér að neðan.
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Slapp
banner
banner