Fotbolti.net
04.07.24 - 14:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

David Raya keyptur til Arsenal (Staðfest)

David Raya.

David Raya.

Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur gefið út fréttatilkynningu þess efnis að félagið sé búið að ganga frá kaupum á markverðinum David Raya.

Arsenal fékk Raya til sín í fyrra frá Brentford á eins árs lánssamningi með kaupmöguleika.
Arsenal borgaði 3 milljónir punda fyrir lánið og greiðir 27 milljónir punda til viðbótar til að ganga frá kaupum á markverðinum.

Raya er 28 ára gamall og var ekki lengi að taka byrjunarliðssætið á milli stanga Arsenal af Aaron Ramsdale. Hann var sá markvörður sem hélt oftast hreinu á nýliðnu tímabili í ensku úrvalsdeildinni.

„Það er draumur að rætast að vera hérna," sagði Raya eftir að kaupin voru staðfest.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.