Fotbolti.net
04.07.24 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Inter kaupir markvörð Genoa (Staðfest)

Josep Martínez.

Josep Martínez.

Canon

Mynd: EPA

Ítalíumeistarar Inter hafa keypt spænska markvörðinn Josep Martínez frá Genoa á þrettán milljónir punda.

Þessi 26 ára markvörður skrifaði undir samning til 2029 eftir að hafa staðist læknisskoðun.
Ítalskir fjölmiðlar segja að Martínez verði varamarkvörður hjá Inter á komandi tímabili en áætluninin sé að hann verði byrjunarliðsmaður 2025-26 tímabilið en þá verður Yann Sommer 37 ára.

Martínez hélt átta sinnum hreinu í 36 deildarleikjum þegar hann spilaði með Alberti Guðmundssyni hjá Genoa á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.