Fernandes og De Bruyne til Sádí-Arabíu? - Salah fær nýjan samning - Calafiori til Arsenal
   fim 04. júlí 2024 18:03
Brynjar Ingi Erluson
Moussa Niakhate til Lyon (Staðfest)
Mynd: Lyon
Franska félagið Lyon hefur staðfest kaupin á Moussa Niakhate frá Nottingham Forest en hann gerir fjögurra ára samning við félagið.

Niakhate er 28 ára gamall miðvörður sem kom til Forest frá Mainz fyrir tveimur árum.

Hann lék 37 leiki og skoraði eitt mark á tíma sínum hjá Forest en nú er hann genginn til liðs við Lyon í Frakklandi.

Lyon greiðir Forest 27 milljónir punda fyrir senegalska landsliðsmanninn.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Lyon fær og annar sem kemur frá Forest en Orel Mangala kom frá enska félaginu fyrir 20 milljónir punda og þá kom Said Benrahma frá West Ham fyrir 12,3 milljónir punda.


Athugasemdir
banner
banner
banner