fim 04. ágúst 2022 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Partey gæti spilað á morgun þrátt fyrir ásakanir um nauðgun
Mynd: Getty Images

Thomas Partey, miðjumaður Arsenal og landsliðsmaður Gana, er ásakaður um þrjú mismunandi kynferðisbrot af tveimur konum. Lögreglan í London handtók Partey 4. júlí en sleppti honum aftur gegn lausnargjaldi og ætlar Arsenal að leyfa honum að virða samninginn við félagið meðan málið er til rannsóknar.


Eitt af þessum þremur brotum hefur verið látið falla niður vegna tæknilegs vandamáls. Enska lögreglan var tilbúin til að leggja fram kæru en gat það ekki vegna tímasetningar meintu nauðgunarinnar sem átti sér stað á Spáni. Hún átti sér stað tíu dögum fyrir mikilvæga lagabreytingu sem gerir fórnarlömbum kleift að kæra breska ríkisborgara fyrir brot sem þeir frömdu á erlendri grundu.

Sara Bella, fyrrum kærasta Partey, ásakar leikmanninn um tvö af þremur brotunum og kærði hann bæði á Spáni og Englandi en spænska lögreglan hefur þegar látið málið falla niður. Bella fór mikinn á Twitter um tíma en hefur lokað aðgangi sínum. Hún þakkaði lögreglunni í London meðal annars fyrir veittan stuðning og lýsti yfir gremju sinni með vinnubrögð lögreglunnar á Spáni.

Búast má við því að áhorfendur bauli hressilega á Partey, sem neitar sök, ef hann verður með liði Arsenal í opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar gegn Crystal Palace annað kvöld.

Partey hefur spilað 59 leiki á tveimur árum hjá Arsenal og á 40 landsleiki að baki fyrir Gana. Hann á þrjú ár eftir af samningnum við Arsenal.


Athugasemdir
banner
banner