Þróttur Vogum óskar eftir því að ráða þjálfara fyrir 4. flokka félagsins frá og með 15. október nk. Leitað er eftir einstaklingi með brennandi ástríðu og áhuga á knattspyrnuþjálfun.
Mikið og gott starf er unnið á vegum félagsins og tekur Þróttur þátt í hinum ýmsu knattspyrnumótum víðsvegar um landið ásamt því að halda úti liðum í 5.- 4. flokki í Íslandsmóti.
Allar almennar upplýsingar veitir Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar, í síma 892-6789 eða á netfangið [email protected].
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þjálfaragráða frá KSÍ eða áætlun um að mennta sig sem þjálfari
- Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af þjálfun barna og ungmenna
- Brennandi áhugi á þjálfun
- Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
- Sjálfstæði í starfi og hæfileiki til að vinna með öðrum
- Frumkvæði og drifkraftur
- Almenn tölvufærni og hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli
- Hafi gott skipulag á hlutunum og sé stundvís
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Starfið
- Umsjón með skipulagningu æfinga og leikja hjá 4. flokki
- Þátttaka í mótum viðkomandi flokks eða flokka
- Umsjón félagslegra viðburða og skráninga á mót
- Vinnur eftir áætlun sem lögð er fram í upphafi hvers starfsárs
- Samskipti við foreldra í gegnum Sportabler
- Notkun á VEO og annara verkfæra þar sem það á við
- Samskipti við foreldraráð viðkomandi flokka vegna skipulagningu móta og/eða keppnisferða
- Samstarf við aðra þjálfara félagsins
- Þjálfari vinnur samkvæmt siðareglum, gildum og lögum félagsins
Óskað er eftir að með umsókn fylgi ferilskrá um fyrri störf og kynningarbréf.
Áherslur og markmið yngriflokka eru að finna á heimasíðu félagsins Þróttar.
Athugasemdir