Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Niðurtalningin - Hver er pælingin hjá Val?
Niðurtalningin – Húsvíkingurinn í brúnni á Akureyri
Niðurtalningin - Himnasending sem kom til Eyja í fyrra
Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta
Fótbolta nördinn - Njarðvík vs Grindavík
Hugarburðarbolti GW 32 Rosaleg spenna!
Niðurtalningin - Nýir vindar blása um í dal draumanna
Enski boltinn - Stressið tekur öll völd
Innkastið - Ferskir nýliðar og vandræðagangur hjá Val
Útvarpsþátturinn - Óheppileg mistök og vítakall
Enski boltinn - Sjokkerandi lélegt hjá Liverpool
Útvarpsþátturinn - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu
Niðurtalningin - Skjöldurinn verður loksins kyrr
Hugarburðarbolti - Extra Fantasy fráhvörf
Besta spjallið: Damir, Jón Þór og Gummi Ben rýna í liðin
Niðurtalningin - Tímabilið í fyrra stórslys í Kópavoginum
Niðurtalningin - Pressan í Garðabænum meiri en áður
Fótbolta nördinn - SÝN vs Fótbolti.net
Niðurtalningin - Mikil spenna eftir stór leikmannakaup
Niðurtalningin - Skála í kampavíni af öðru tilefni í sumar
   mán 04. nóvember 2013 14:45
Magnús Már Einarsson
Upptaka - Rúnar Páll: Brynjar kom fyrstur upp úr kassanum
Rúnar Páll Sigmundsson.
Rúnar Páll Sigmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Björn Gunnarsson.
Brynjar Björn Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, segir að Brynjar Björn Gunnarsson hafi komið fyrstur upp í hugann þegar hann var að leita að manni í þjálfarateymið með sér og Henrik Bödker.

Brynjar Björn verður í þjálfarateymi í meistaraflokki Stjörnunnar og mun þjálfa 2. flokk félagsins en hann var ráðinn til starfa fyrir helgi.

,,Við vorum að kasta nöfnum og hann kom fyrstur upp úr kassanum. Hann var fyrsti valkostur. Hann var erlendis þegar við hringdum í hann og þetta tók sinn tíma en þetta gekk upp og við erum ánægðir í Garðabænum," sagði Rúnar Páll í útvparsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardag.

,,Það er hrikalega sterkt fyrir mig, leikmennina og klúbbinn að fá mann eins og Brynjar Björn til okkar. Hann er hokinn af reynslu og er frábær karakter sem á eftir að hjálpa okkur mikið. Við erum mjög ánægðir með þetta."

Rúnar Páll tók sjálfur við liði Stjörnunnar af Loga Ólafssyni á dögunum en hvaða áherslubreytingar mun hann koma með?

,,Áherslubreytingarnar mínar verða ekki svakalega miklar. Það verða kannski smá breytingar á sóknarleiknum en varnarleikurinn verður með mjög svipuðu sniði. Ég og Logi Ólafsson vorum mjög sammála um hann."

,,Ég vil spila skemmtilegan fótbolta með fáum snertingum og við munum vinna í því. Við erum með marga unga og skemmtilega stráka sem eru að koma upp og við munum reyna að spila boltanum í fáum snertingum frá þeim aftasta til þess fremsta."

Hér að ofan má hlusta á viðtalið við Rúnar í heild en þar talar hann meðal annars um vandamál sem Norðmenn standa frammi fyrir í yngri flokka starfinu.
Slapp
banner
banner
banner