Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 04. desember 2021 13:40
Aksentije Milisic
Guardiola sagður ástfanginn af Vlahovic
Mynd: EPA
Manchester United, Arsenal, Juventus og Tottenham eru öll á eftir serbanum Dusan Vlahovic en hann hefur verið frábær hjá Fiorentina og skorað eins og óður maður.

Manchester City hefur nú bæst við í baráttuna og eru það slæmar fréttir fyrir hin liðin. Eftir að City mistókst að fá Harry Kane síðasta sumar hefur Guardiola hamrað á því að City verði að fá framherja í janúar.

Stjóri City eru sagður vera ástfanginn af Vlahovic og spilamennsku hans en City er sagt vera í viðræðum við Fiorentina um kaup og kjör á framherjanum stóra og stæðilega.

Fiorentina hefur reynt að fá Vlahovic til að framlengja samning sinn sem rennur út sumarið 2023 en það hefur gengið illa. Hann vill komast burt og fá nýja áskorun.

Þessi 21 árs gamli framherji hefur skorað 12 mörk og lagt upp tvö í fimmtán leikjum það sem af er þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner