Simon Kjær, varnarmaður AC Milan, verður ekki klár í næstu leiki liðsins eftir að hafa meiðst gegn Genoa á miðvikudag.
Kjær var í byrjunarliði Milan í öruggum 3-0 sigri en hann spilaði þó aðeins fjórar mínútur og var svo borinn af velli.
Daninn fór í aðgerð vegna þess á föstudag og hefur Milan staðfest það að hann spili ekki meira á þessu ári.
Mestar líkur eru á að Kjær verði klár í lok janúar eða byrjun febrúar sem er töluverður skellur fyrir ítalska félagið.
Milan er í harðri toppbaráttu þessa dagana og er aðeins einu stigi á eftir Napoli sem er í toppsætinu.
Athugasemdir