Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 04. desember 2021 10:00
Victor Pálsson
Merino: Ég er einn besti leikmaður deildarinnar
Mynd: EPA
Mikel Merino, leikmaður Real Sociedad, horfir á sjálfan sig sem einn besta leikmann spænsku deildarinnar.

Merino hefur staðið sig virkilega vel með Sociedad á tímabilinu en liðið er í þriðja sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir toppliði Real Madrid.

Merino er fyrrum leikmaður Newcastle en stjóri Sociedad lýsti honum sem besta leikmanni deildarinnar í september sem vakti töluverða athygli í spænskum miðlum.

Miðjumaðurinn tekur ekki alveg undir þau ummæli en er þó sannfærður um að hann sé á meðal bestu leikmanna í þessari sterku deild þar sem margar stórstjörnur spila.

„Mér líður eins og ég verði betri á hverju ári og mikilvægari mínu liði. Ef ég á að vera hreinskilininn þá já, ég mun ekki segja að ég sé bestur í deildinni en vil meina að ég sé einn sá besti," sagði Merino.

„Það er sjálfstraustið sem þú þarft að hafa, ef ekki þá hvernig bætirðu þig?"
Athugasemdir
banner
banner