Sergio Ramos, varnarmaður PSG, spilaði sinn fyrsta leik fyrir franska liðið um síðustu helgi en þá lagði PSG lið St.Etienne að velli með þremur mörkum gegn einu.
Ramos hafði verið meiddur frá því hann kom til liðsins í sumar og nú stuttu eftir hans fyrsta leik fyrir félagið, er hann aftur meiddur.
Hann er með vöðvameiðsli en hann var ekki með gegn Nice í miðri viku. Áður hafði hann glímt við meiðsli í kálfa sem höfðu haldið honum frá vellinum í langan tíma.
Ramos, sem er að vinna undir stjórn sjúkraþjálfara, er sagður snúa aftur til æfinga á morgun en það verður allt að koma í ljós.
Þá eru Ander Herrera og Julian Draxler einnig á meiðslalistanum.
Athugasemdir