Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 05. janúar 2021 12:54
Elvar Geir Magnússon
Tottenham sektar þremenningana
Myndin frá jólaglðskapnum.
Myndin frá jólaglðskapnum.
Mynd: Instagram via Mail
Tottenham hefur sektað þá Sergio Reguilon, Erik Lamela og Giovani Lo Celso eftir að leikmennirnir brutu samkomureglur um jólahátíðina.

Þeir voru allir á hópmynd sem tekin var á jóladag en á myndinni var einnig Manuel Lanzini, leikmaður West Ham.

Myndin sýndi klárt brot á sóttvarnareglum á Bretlandseyjum en fjölskyldur leikmannana komu saman til að halda upp á jólin.

The Athletic greinir frá því að leikmennirnir hafi verið sektaðir.

„Við erum mjög vonsviknir og fordæmum þessa hegðun eindregið," sagði í yfirlýsingu frá Tottenham eftir að myndin var birt.

Lo Celse er á meiðslalistanum og verður væntanlega frá út mánuðinn en Mourinho sagði frá því á fréttamannafundi að Lamela yrði ekki með gegn Brentford í kvöld, án þess að gefa útskýringu á því.

Reguilon var á bekknum gegn Leeds á laugardaginn og verður væntanlega í leikmannahópnum í dag.

Mourinho hafði keypt mat fyrir Reguilon um jólin því hann hélt að spænski bakvörðurinn yrði einn um hátíðarnar þar sem fjölskylda hans er enn búsett á Spáni.
Athugasemdir
banner
banner
banner