Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 05. janúar 2022 19:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sakar Adidas um misrétti - „Hefði verið gott að fá þetta í raun og veru"
Beth Mead
Beth Mead
Mynd: EPA
Arsenal og Adidas hafa verið í samstarfi frá árinu 2019 en það komu út nýr æfingafatnaður frá félaginu í dag.

Kvennaliðið auglýsti það til sölu á Twitter síðu sinni en Beth Mead leikmaður liðsins deildi því og sagði að liðið sjálft hafi aldrei fengið þennan búning í hendurnar og kvennasniðið sé heldur ekki fáanlegt.

Hún hafði eytt færslunni stuttu síðar en stuðningsmenn félagsins taka í sama streng og hún og saka félagið um kynjamistrétti.

Í auglýsingu Arsenal er notast við teiknaða mynd af Leah Williamsson leikmanni kvennaliðsins.






Athugasemdir
banner
banner
banner