Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   sun 05. febrúar 2023 15:20
Aksentije Milisic
Hazard enn og aftur meiddur - Í 18 skiptið hjá Real
Mynd: Getty Images

Sorgarsaga Eden Hazard hjá Real Madrid virðist engan endi ætla að taka en Belginn er enn og aftur meiddur.


Hann fékk högg á hné og verður frá keppni en þetta er nú í átjánda skiptið sem hann verður frá vegna meiðsla hjá spænska stórveldinu.

Hazard kom til Real Madrid frá Chelsea árið 2019 fyrir 150 milljónir punda en leikmaðurinn hefur einungis spilað þrjá deildarleiki það sem af er þessu tímabili.

Hann hefur einungis byrjað einn deildarleik og hann kom þann 9. september gegn Real Mallorca.

Belganum hefur einungis tekist að skora sjö mörk í öllum keppnum á þremur og hálfu ári hjá Real en hann var á sínum tíma einn af bestu leikmönnum heims.


Athugasemdir
banner
banner