Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 05. mars 2023 18:18
Brynjar Ingi Erluson
Martröð Man Utd ætlar engan endi að taka
Roberto Firmino skoraði sjöunda mark Liverpool
Roberto Firmino skoraði sjöunda mark Liverpool
Mynd: EPA
Mohamed Salah gat ekki verið minni maður en Cody Gakpo og Darwin Nunez en hann var að gera annað mark sitt og koma Liverpool í 6-0 og stuttu síðar kom sjöunda markið í gegnum Roberto Firmino.

Harvey Elliott reyndi sendingu inn í teig og var þar Roberto Firmino í boltanum en boltinn fór þaðan af varnarmanni og fyrir Salah sem skoraði annað mark sitt.

Roberto Firmino bætti síðan við sjöunda markinu stuttu síðar eftir sendingu frá Mohamed Salah. Hann lagði boltann á milli lappa David De Gea og í netið.

Staðan er 7-0.

Sjáðu markið hjá Salah

Sjáðu mark Firmino

Athugasemdir
banner
banner
banner