Fotbolti.net
05.06.17 - 22:10
Alexander Freyr Tamimi

Willum: Það var tafs og hik á honum þá

Auglýsing
Willum og félagar töpuðu í kvöld.

Willum og félagar töpuðu í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, var eðlilega svekktur eftir 1-0 tap sinna manna gegn nýliðum Grindavíkur á heimavelli í Pepsi-deildinni í kvöld.

KR er einungis með sjö stig eftir fyrstu sex umferðirnar og situr í 8. sæti Pepsi-deildarinnar. Leikurinn í kvöld réðist á marki Andra Rúnars Bjarnasonar úr vítaspyrnu, en Willum var ekki ánægður með dómgæsluna í aðdraganda vítaspyrnunnar.
„Auðvitað er það í svona jöfnum leikjum, þar sem hvorugt liðanna gefur mikil færi á sér, þá getur þetta oltið á ákvörðunum hér og þar. Þetta var mjög afdrifarík ákvörðun hérna í lok leiks, þegar fjórði dómarinn ákveður að dæma leikinn. Við fáum á okkur aukaspyrnu, auðvitað eigum við að gera betur í aukaspyrnunni, þetta er hár bolti inni í teig og við stöndum ekki vaktina, en svona leikur veltur bara á þessu. Við hefðum getað fengið víti í fyrri hálfleik og ef við hefðum náð forskoti þar hefði þetta verið allt annar leikur,\" sagði Willum í leikslok.

„Aðdragandinn að þessu er býsna sérstakur. Finnur Orri vinnur boltann og er bara með hann, og dómarinn inni á vellinum er ekki að fara að dæma neitt. Þá grípur fjórði dómarinn í taumana og ákveður að dæma aukaspyrnu, mjög sérstakt.\"

Í fyrri hálfleik hefði KR hæglega getað fengið víti en þá var ekkert dæmt: „Það var tafs og hik á honum þá. Það segja margir að það hafi átt að vera víti.\"

Aðspurður hvort hann hafi áhyggjur af stöðu KR í deildinni segir Willum: „Það er bara hundfúlt og sárt að hafa ekki náð að landa hér og fara í tíu punkta og taka skrefið. Við erum búnir að spila mjög vel að mínu mati en frammistaðan er ekki að skila stigum, það er auðvitað hundfúlt.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.