Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 05. júní 2020 16:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Víkingur semur við fimm leikmenn
Við undirskriftina í dag.
Við undirskriftina í dag.
Mynd: Víkingur R.
Knattspyrnudeild Víkings skrifaði í dag undir framlengingu á samningum sínum við Júlíus Magnússon og Loga Tómasson út árið 2022. Við sama tilefni skrifuðu Tómas Guðmundsson og Isaac Afriyie undir samninga við félagið og þá skrifaði Kristall Máni Ingason undir lánssamning frá FC Kaupmannahöfn út sumarið.

Júlíus Magnússon er miðjumaður, fæddur árið 1998, sem kom til Víkings frá SC Heerenveen í Hollandi fyrir síðasta tímabil. Júlíus spilaði 21 leik og skoraði eitt mark fyrir liðið í fyrra.

Logi Tómasson er vinstri bakvörður sem fæddur er árið 2000. Hann spilaði sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk sumarið 2018 og fór á láni til Þróttar það sumar. Hann á alls að baki 34 leiki og 2 mörk í meistaraflokki.

Tómas Guðmundsson er miðvörður, fæddur árið 1992. Hann lék með Víkingi á árunum 2009 til 2016 en hefur ekki leikið knattspyrnu undanfarin þrjú ár. Hann byrjaði að æfa með Víkingi á ný síðastliðið sumar og hefur nú náð fyrri styrk og fengið nýjan samning við félagið.

Isaac Owusu Afriyie er miðju- og sóknarmaður sem er uppalinn í Fjölni en skipti í Víking árið 2018 og hefur leikið með öðrum flokki félagsins undanfarin ár. Hann gerir nú sinn fyrsta samning við félagið en reiknað er með því að hann verði lánaður frá félaginu í sumar.

Kristall Máni Ingason er miðjumaður, fæddur árið 2002 og er samningsbundinn FC Kaupmannahöfn í Danmörku. Hann kemur til Víkings sem lánsmaður og mun leika með liðinu í sumar. Fótbolti.net staðfesti félagaskipti Kristals fyrr í þessari viku.

Víkingi er spáð fimmta sæti Pepsi Max-deildarinnar af Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner
banner