Khaldoon Al-Mubarak forseti Manchester City opnaði sig um náið samband sitt við Pep Guardiola sem hætti við stjórnvölinn hjá Manchester City í maí.
Pep hætti eftir tíu mögnuð ár sem aðalþjálfari Man City þar sem hann breytti ekki eingöngu spilamennsku og ímynd Man City heldur tókst honum að breyta hvernig fótbolti er spilaður um allan heim.
Guardiola leiddi City til sex úrvalsdeildartitla og Meistaradeildartitils á dvöl sinni hjá félaginu, auk þess að vinna enska bikarinn og deildabikarinn nokkrum sinnum. Í heildina vann City 17 stóra titla undir hans stjórn.
„Auðvitað hafa verið hæðir og lægðir á dvöl Pep við stjórnvölinn. Hann hefur örugglega hætt hundrað sinnum en ég sannfærði hann alltaf um að halda áfram, þar til núna. Ég sá það á honum að hann meinti það í þetta skiptið," segir Al-Mubarak.
„Það var kominn tími til að skipta um andrúmsloft. Hann er búinn að gefa okkur svo mikið, hann er meira en bara stjóri félagsins. Í mínum augum er hann náinn vinur minn. Ég veit ekki hvort hann muni viðurkenna það en ég lít á sjálfan mig sem geðlækninn hans.
„Hann sagðist svo oft ætla að hætta en ég tók honum aldrei alvarlega, ég talaði hann alltaf til. Í þetta skiptið sá ég að það var engin leið. Upprunalega ætlaði hann bara að vera hérna í fjögur ár."
Talið er að Enzo Maresca, fyrrum aðstoðarþjálfari Guardiola, muni taka við stjórn á Man City þegar félaginu tekst að semja við Chelsea um félagaskipti.
29.05.2026 20:30
Guardiola: Stærsta viðurkenning sem hægt er að fá




