Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 05. júlí 2020 15:12
Ester Ósk Árnadóttir
Byrjunarlið KA og Breiðabliks: Guðmundur Steinn byrjar
Guðmundur Steinn í byrjunarliði KA í fyrsta skipti í sumar
Guðmundur Steinn í byrjunarliði KA í fyrsta skipti í sumar
Mynd: KA
Í dag kl. 16:00 hefst leikur KA og Breiðablik á Greifavellinum í fjórðu umferð Pepsí-Max deildar karla.

Breiðablik hefur farið vel af stað í deildinni og erum með fullt húsa stiga eftir þrjá leiki. KA hefur spilað tvo leiki í deild en leiknum á móti Stjörnunni í síðustu umferð var frestað vegna Covid. KA leitar enn að fyrsta sigrinum í deildinni en sem stendur er liðið í 10 sæti með 1 stig.

KA gerir tvær breytingar frá síðasta leik í deild. Hallgrímur Jónasson meiddist illa í bikarnum og inn fyrir hann kemur Rodrigo Gomes Mateo. Sömuleiðis kemur Guðmundur Steinn inn í liðið í stað Nökkva Þeyr sem er ekki í hóp. Þetta er í fyrsta skipti í deild sem Mateo og Guðmundur Steinn byrja fyrir KA.

Breiðablik gerir eina breytingu á byrjunarliðinu frá síðasta leik en Brynjólfur kemur inn í stað Kristins Steindórssonar .

Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan.

Byrjunarlið KA
1. Aron Dagur Birnuson
7. Almarr Ormarsson (f)
3. Mikkel Qvist
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson
16. Brynjar Ingi Bjarnason
22. Hrannar Björn Steingrímsson
33. Guðmundur Steinn Hafsteinsson
77. Bjarni Aðalsteinsson

Byrjunarlið Breiðabliks
12. Anton Ari Einarsson
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
8. Viktor Karl Einarsson
9. Thomas Mikkelsen
10. Brynjólfur Andersen Willumsson
11. Gísli Eyjólfsson
16. Róbert Orri Þorkelsson
30. Andri Rafn Yeoman
Athugasemdir
banner
banner
banner