Southampton fær Nathan Wood frá Swansea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Southampton tilkynnti í kvöld kaup á enska varnarmanninum Nathan Wood en hann kemur frá Swansea fyrir 3 milljónir punda.
Wood er 22 ára gamall miðvörður og verið hluti af U21 árs landsliði Englands.
Russell Martin, stjóri Southampton, var einmitt maðurinn sem keypti Wood til Swansea frá Middlesbrough fyrir tveimur árum en Martin tók við Southampton á síðasta ári.
Þeir endurnýja kynni sín hjá Southampton en Wood skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við félagið. Kaupverðið er 3 milljónir punda.
Þetta er fimmti leikmaðurinn sem Southampton fær í sumarglugganum á eftir þeim Adam Lallana, Taylor Harwood-Bellis, Charlie Taylor og Ronnie Edwards.
Southampton er nýliði í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa unnið B-deildarumspilið.

Howdy, Woody ???? pic.twitter.com/gygi0uJpHB
— Southampton FC (@SouthamptonFC) July 5, 2024