Sergio Romero, markvörður Manchester United, var maður leiksins í 2-1 sigrinum á LASK Linz í Evrópudeildinni í kvöld en Manchester Evening News gaf einkunnir eftir leik.
Jesse Lingard og Anthony Martial skoruðu mörk United í leiknum en liðið vann samanlagt 7-1.
Romero fékk 8 fyrir frammstöðu sína í leiknum en Linz átti nokkur hættuleg færi í leiknum.
Man Utd: Sergio Romero (8), Timothy Fosu-Mensah (4), Harry Maguire (6), Eric Bailly (6), Brandon Williams (5), Scott McTominay (5), Fred (5), Juan Mata (6), Jesse Lingard (7), Daniel James (3), Odion Ighalo (5).
Varamenn: Andreas Pereira (6), Tahith Chong (5), Anthony Martial (7), Teden Mengi (6).
Athugasemdir