Fotbolti.net
05.08.20 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Gary Martin með 36 mörk í 31 leik síðan hann kom frá Noregi

Gary Martin hefur raðað inn mörkum síðan hann kom aftur frá Darlington

Gary Martin hefur raðað inn mörkum síðan hann kom aftur frá Darlington

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gary Martin, framherji ÍBV í Lengjudeildinni, hefur gert 36 mörk í 31 leik frá því hann kom aftur til landsins frá Lilleström í Noregi.
Gary er fæddur árið 1990 og kom fyrst til landsins árið 2010 og samdi við ÍA eftir að hafa komið upp úr akademíunni hjá Middlesbrough.

Hann hefur verið iðinn við kolann á Íslandi en hann lék lengst af með KR þar sem hann raðaði inn mörkum áður en hann hélt út í atvinnumennsku.

Þegar hann sneri aftur heim gekk hann til liðs við Val. Hann gerði 7 mörk í 4 leikjum í Lengjubikarnum en spilaði aðeins þrjá leiki með liðinu í Pepsi Max-deildinni og gerði tvö mörk.

Gary gekk til liðs við ÍBV í sumarglugganum. 12 mörk í jafnmörgum leikjum var þó ekki nóg til að halda liðinu uppi. Á þessu tímabili hefur hann gert 8 mörk í 8 leikjum í Lengjudeildinni og þá skorað 7 mörk í aðeins 3 leikjum í bikarnum.

Í heildina er hann því með 36 mörk í 31 leik síðan hann kom aftur til Íslands úr atvinnumennsku. Ótrúleg tölfræði hjá enska framherjanum en ÍBV er að gera sterkt tilkall um að fara aftur í Pepsi Max-deildina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.