Arsenal er búið að skora fyrsta mark tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni en það var brasilíski kantmaðurinn Gabriel Martinelli sem gerði markið á 20. mínútu gegn Crystal Palace á Selhurst Park.
Arsenal fékk hornspyrnu sem Bukayo Saka tók. Boltinn var langur á fjær þar sem úkraínski vinstri bakvörðurinn Oleksandr Zinchenko var mættur.
Hann stangaði boltann fyrir markið og á Martinelli sem kom boltanum í netið. Vel útfærð hornspyrna og gestirnir komnir með forystu.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Sjáðu mark Gabriel Martinelli
Athugasemdir