Fotbolti.net
05.10.20 - 20:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Valgeir í Brentford (Staðfest)

Valgeir í Brentford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Valgeir Valgeirsson er genginn í raðir Brentford á lánssamningi frá HK í Pepsi Max-deildinni. Hann mun spila með Brentford B, varaliði Brentford. Ef hann stendur sig vel þar þá gæti hann komist í aðalliðið.
Guðmundur Benediktsson greindi fyrstur frá þessu fyrir stuttu síðan. Brentford hefur núna staðfest tíðindin, en félagið mun hafa kauprétt á Valgeiri eftir lánið.

Þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára gamall hefur Valgeir verið lykilmaður í liði HK í Pepsi Max-deildinni. Hann getur spilað bæði sem kantmaður og bakvörður.

Brentford er í næst efstu deild á Englandi, Championship-deildinni. Félagið tapaði úrslitaleik umspilsins um sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Markvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson er á mála hjá Brentford.

HK er í níunda sæti Pepsi Max-deildarinnar með 20 stig úr 18 leikjum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.