Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. nóvember 2014 22:30
Daníel Freyr Jónsson
Chelsea enn ósigrað - Jöfnun á félagsmeti
Chelsea hefur verið í frábæru formi í vetur.
Chelsea hefur verið í frábæru formi í vetur.
Mynd: Getty Images
Chelsea gerði í kvöld 1-1 jafntefli gegn Maribor á útivelli og heldur félagið því áfram að vera ósigrað á tímabilinu.

Alls hafa leikmenn Jose Mourinho spilað 16 leiki frá upphafi tímabilsins í öllum keppnum án þess að tapa leik.

Þetta frábæra gengi liðsins er jöfnun á félagsmeti.

Chelsea er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 26 stig úr 10 leikjum. Þá er liðið að sama skapi á toppi riðils síns í Meistaradeildinni með 8 stig úr 4 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner