05.11.20 - 12:10
Magnús Már Einarsson
Scholes: Martial var oft labbandi

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Paul Scholes, fyrrum miðjumaður Manchester United, var ekki hrifinn af frammistöðu Anthony Martial í 2-1 tapinu gegn Istanbul Basaksehir í Meistaradeildinni í gær.
Martial skoraði mark Manchester United í leiknum en Scholes vildi sjá meira frá honum.
„Ég er mikill aðdáandi Anthony Martial en ég horfði oft á hann og þá var hann labbandi," sagði Scholes á BT Sport.
„Hann þarf að átta sig á því að hann er framherji, þú þarft að hreyfa þig af og til ef þú ætlar að skora mark."

„Þú getur ekki labbað fyrir framan miðverðina tvo og gert ekkert."