Kieran Trippier, bakvörður Atletico Madrid, á Spáni var á dögunum dæmdur í tíu vikna bann frá fótbolta fyrir að brjóta veðmálareglur enska knattspyrnusambandsins.
Brotin áttu sér stað í júlí 2019 á svipuðum tíma og Trippier yfirgaf Tottenham til að ganga í raðir Atletico.
Atletico Madrid, félag Trippier, ákvað að áfrýja banninu og má hann spila þangað til áfrýjunin verður tekin fyrir.
Samskipti Trippier við vin sinn fyrir félagaskiptin hafa verið birt. Þar segir Trippier meðal annars að hann muni fá betur borgað hjá Atletico en hjá Tottenham. Svo spyr vinurinn hvort hann eigi að leggja pening undir á að skiptin fari í gegn.
„Þú getur gert það vinur... ekki kenna mér um ef það fer eitthvað úrskeiðis. Það á ekki að gerast, en ég er bara að láta þig vita."
Vinurinn sagðist þá bara vera að grínast, en því svaraði Trippier: „Þú getur alveg veðjað á þetta ef þú vilt vinur."
Samkvæmt frétt Daily Mail þá sendi Trippier svo skilaboð til vina sinna þar sem sagði: „Þetta er að fara að gerast." Það varð til frekari veðmála - þar á meðal eitt fyrir 300 pund daginn áður en hann gekk í raðir Atletico.
FIFA er núna að skoða málið og það verður fróðlegt að sjá hvort banni Trippier verði eitthvað breytt.
“Lump on if you want.”
— ESPN FC (@ESPNFC) January 5, 2021
The WhatsApp messages that led to Kieran Trippier's 10-week ban from football, according to a report published by the FA. pic.twitter.com/3OGUibpdgU
Athugasemdir