Klukkan 15 hefst leikur Sheffield United og Southampton á Bramall Lane.
Sheffield situr sem fastast á botni deildarinar eins og liðið hefur gert í allan vetur. Það kom þó sigur í síðasta leik liðsins en það var í miðri viku gegn Aston Villa. Sheffield lék manni færri stóran hluta síðari hálfleiks en náði að sigla sigrinum heim.
Southampton hefur gengið bölvanlega upp á síðkastið. Liðið hefur tapað hverjum leiknum á fætur öðrum eftir frábæra byrjun á tímabilinu. Fyrir leikinn í dag er Southampton í fjórtánda sæti deildarinnar, sjö stigum frá fallsæti.
Heimamenn gera eina breytingu frá sigurleiknum góða gegn Villa. Jayden Bogle kemur inn fyrir Phil Jagielka sem er í leikbanni.
Gestirnir frá Southampton gera þrjár breytingar frá tapinu gegn Everton á mánudeginum. Takumi Minamino, Kyle Walker-Peters og Ibrahima Diallo koma allir í liðið.
Sheffield United: Ramsdale, Ampadu, Bryan, Stevens, Baldock, Bogle, Norwood, Lundstram, Fleck, Brewster, McGoldrick.
Southampton: Forster, Peters, Bednarek, Vestergaard, Bertrand, Diallo, Prowse, Armstrong, Tella, Minamino, Ings.
Athugasemdir