Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 06. apríl 2021 15:17
Elvar Geir Magnússon
Coutinho líklega ekki meira með á tímabilinu
Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho.
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho hefur verið á meiðslalistanum síðan nýtt ár gekk í garð og samkvæmt spænskum fjölmiðlum er nú útlit fyrir það að hann komi ekki meira við sögu á tímabilinu.

El Mundo Deportivo segir að þessi leikmaður Barcelona sé mættur til Brasilíu í aðra aðgerð á hné en hann hafði farið í aðgerð í janúar sem ekki gekk að óskum.

Coutinho hefur aðeins náð tíu byrjunarliðsleikjum á tímabilinu.

Hann gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Barcelona en katalónska félagið hyggst selja hann í sumar.

Coutinho kom frá Liverpool 2018 en hann hefur aldrei náð að standa undir væntingum á Nývangi. Hann hefur leikið 90 leiki fyrir Börsunga en ef hann nær 100 leikjum þarf félagið að borga Liverpool 20 milljónir evra í viðbót fyrir leikmanninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner