Lionel Messi, stórstjarna Barcelona, var ekki sáttur með dómarann, Jaime Latre, í naumum sigri á Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í gær.
Ousmane Dembele skoraði eina markið í leiknum á 90. mínútu og Barcelona er núna aðeins einu stigi frá toppsætinu.
Næsti deildarleikur Barcelona er útileikur við erkifjendur sína í Real Madrid á sunnudag. Messi var í gær einu gulu spjaldi frá því að fara í bann en hann fékk ekki gult spjald í leiknum og má því spila í Madríd.
Samkvæmt spænska dagblaðinu Diario AS þá fannst Messi dómarinn vera að leitast eftir því að gefa sér gult spjald og lét hann þá skoðun í ljós á meðan leiknum stóð.
„Hann vill gefa mér gult spjald, ótrúlegt," á Messi að hafa sagt um dómarann í hálfleik.
Hann slapp hins vegar við gula spjaldið sem eru frábær tíðindi fyrir Börsunga.
Athugasemdir