Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   fim 06. maí 2021 20:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fram komst í 3-0 á 5. mín gegn Ólsurum - Albert sjóðheitur
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram var ekkert að tvínona við hlutina þegar liðið tók á móti Víking Ólafsvík í Safamýrinni í kvöld. Leikurinn er liður í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar.

Fram var komið í 3-0 á 5. mínútu leiksins. Albert Hafsteinsson skoraði fyrsta markið strax á 1. mínútu úr vítaspyrnu, Tryggvi Snær Geirsson kom liðinu í 2-0 á 3. mínútu og Fred skoraði þriðja markið á 5. mínútu.

Albert Hafsteinsson lagði upp annað og þriðja markið og byrjar mótið virkilega vel.

Það er hálfleikur í þessum töluðu orðum en seinni hálfleikur fer að fara af stað, staðan er enn 3-0. Einnig er í gangi viðureign Þróttar og Fjölnis í Laugardalnum, þar er staðan marklaus í hálfleik.

„ER ALBERT VEIKUR EFTIR JANSEN EÐA?!? Albert fær boltann við teiginn vinstra megin, sendir á Fred sem tekur touch og skýtur á nær, Konni nær ekki að verja og boltinn í netinu!
ÞVÍLÍK BYRJUN HJÁ FRAM!"
skrifaði Baldvin Már Borgarsson á 5. mínútu leiksins.

Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá Framvelli
Smelltu hér til að fara í textalýsinguna frá Eimskipsvellinum
Athugasemdir
banner
banner