Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. maí 2022 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Ég hef ekki hugmynd hvernig þeir tala saman"
Diaz hefur leikið stórkostlega með Liverpool.
Diaz hefur leikið stórkostlega með Liverpool.
Mynd: EPA
Kaup Liverpool á Kólumbíumanninum Luis Diaz eru einhver bestu janúarkaup í manna minnum.

Liverpool borgaði um 40 milljónir punda til þess að kaupa hinn 25 ára gamla Diaz frá Porto í janúar. Hann þurfti engan aðlögunartíma og er búinn að vera frábær hingað til.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, er gríðarlega ánægður með leikmanninn. Hann segir hann hafa fallið vel inn í hópinn þó hann tali litla sem enga ensku.

„Hann nær að hafa samskipti við alla án þess að tala tungumálið. Það eru spænskumælandi menn í hópnum og þeir hafa hjálpað honum mikið," sagði Klopp um Diaz á fréttamannafundi í dag.

Diaz er einnig náinn ensku leikmönnunum, en Klopp hefur enga hugmynd um hvernig það varð til.

„Hann er mjög náinn Curtis (Jones) og Harvey (Elliott). Ég hef ekki hugmynd hvernig þeir tala saman en þeir tengja vel. Þeir náðu strax góðum tengslum. Það er mjög skrítið," sagði Klopp léttur.
Athugasemdir
banner
banner
banner