Fotbolti.net
06.06.22 - 20:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Liverpool að missa af Tchouameni til Madrídar

Aurelien Tchouameni.

Aurelien Tchouameni.

Canon

Mynd: EPA

Franski miðjumaðurinn Aurelien Tchouameni færist nær því að ganga í raðir Real Madrid.

Ítalski fjölmiðlamaðurinn Fabrizio Romano segir frá þessum tíðindum í kvöld.
Tchouameni er búinn að ná munnlegu samkomulagi við Evrópumeistarana en núna eru Real Madrid og Mónakó, núverandi félag miðjumannsins, að ræða um framhaldið.

Romano segir að forráðamenn Real Madrid séu að verða bjartsýnari og bjartsýnari um að Tchouameni verði leikmaður félagsins.

Hann hefur einnig verið sterklega orðaður við Liverpool en er sagður spenntastur fyrir því að fara til Spánar og spilar þar fyrir Madrídarstórveldið.

Tchouameni verður ekki ódýr og hafa verið sögur um að Mónakó sé að biðja um 90 milljónir evra fyrir þennan 22 ára gamla miðjumann.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.