Vestri tóku á móti Völsung á Kerecis-vellinum á Ísafirði fyrr í dag. Leikurinn fór fram í 8. umferð Lengjudeildarinnar og Vestri unnu þar 5-1 stórsigur.
Fótbolti.net ræddi við Daniel Badu þjálfara Vestra eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Vestri 5 - 1 Völsungur
5-1 sigur á Völsungi í dag, þú hlýtur að vera ánægður með liðið.
„Já, Við vorum í smá vandræðum í fyrri hálfleik, þótt við vorum í vandræðum þá vorum við rólegir með stöðuna í hálfleik og vissum hverju við þurftum að breyta og breyttum því ".
Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik tóku Vestramenn yfir leikinn, um hvað var rætt í hálfleik sem gerði það að verkum að þið tókuð yfir?
„Við vorum að spila 5 manna vörn í fyrri hálfleik og það var mikið pláss á miðjunni okkar sem við þurftum að verjast, sem var erfitt. Við breyttum í 4 manna vörn og þá gekk betur að verjast á miðjunni og það var lykillinn af því sem við gerðum til að breyta leiknum".
Það hefur oft verið mikið um erlenda leikmenn í liði Vestra í gegnum tíðina, í dag voru átta uppaldir leikmenn sem komu við sögu hjá Vestra, ertu ánægður með þeirra framlag?
„Já það eru góðir leikmenn hérna á Vestfjörðum og þeir tóku sénsinn sinn í liðinu vel í dag og ég vona að þeir geri það í næstu leikjum".
Vestri situr í 5. sæti Lengjudeildarinnar eftir átta leiki, ertu ánægður með byrjunina á tímabilinu?
„Nei, það er margt sem ég er ánægður með en það er líka margt sem mætti bæta til dæmis það að við gefum oft mörk og við töpum oft boltanum þegar við þurfum ekki að gera það, en ef við spilum eins og við spiluðum í dag og höldum góðum strúktúr á liðinu, þá getum við refsað öllum liðum með sóknarmönnunum okkar".
Það voru nokkrir leikmenn Vestra utan hóps í dag vegna meiðsla t.d. Sergine Fall, Thibang Cafu Phete, Jacob Stensson og fleiri hvernig er staðan á þeim?
„Ég vona að þeir verði tilbúnir að spila næsta leik. Í dag sýndum við að við erum með góðan hóp og þegar einhver dettur út þá kemur einhver annar í staðinn og gerir vel, það er gott að sjá það".
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.






















