Leiknir Reykjavík á flesta fulltrúa í liði 3. umferðar í Lengjudeildinni eftir frábæran útisigur á Keflavík.
Sigurður Heiðar Höskuldsson er þjálfari umferðarinnar og eru þeir Brynjar Hlöðversson, Daníel Finns Matthíasson og Sævar Atli Magnússon í liði umferðarinnar.
Sigurður Heiðar Höskuldsson er þjálfari umferðarinnar og eru þeir Brynjar Hlöðversson, Daníel Finns Matthíasson og Sævar Atli Magnússon í liði umferðarinnar.
Gary Martin skoraði tvennu fyrir ÍBV gegn Víkingi Ólafsvík og átti Halldór Páll Geirsson einnig flottan leik í markinu fyrir Vestmannaeyinga. Gary er í fyrsta sinn í liði umferðarinnar en örugglega ekki í það síðasta.
Alvaro Montejo fór fyrir liði Þórs í sigri gegn Þrótti og átti Ólafur Aron Pétursson flottan leik á miðjunni. Fáskrúðsfirðingar unnu útisigur gegn Magna og eru þeir Arek Grzelak og Kristófer Páll Viðarsson í liði umferðarinnar.
Albert Hafsteinsson skoraði sigurmark Fram gegn Aftureldingu og var Gunnar Þorsteinsson maður leiksins fyrir Grindavík gegn Vestra. Gunnar leikur vanalega á miðjunni en hann er í hjartanu í þriggja manna vörn í liði umferðarinnar og mun taka alla skallabolta og stýra spilinu.
Fyrri lið:
Lið 1. umferðar
Lið 2. umferðar
Athugasemdir