Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 06. júlí 2021 01:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Copa America: Brasilía í úrslit eftir nauman sigur
Paqueta hér lengst til vinstri ásamt Neymar og Richarlison
Paqueta hér lengst til vinstri ásamt Neymar og Richarlison
Mynd: EPA
Brazil 1 - 0 Peru
1-0 Lucas Paqueta ('35 )

Brasilía er komið í úrslitaleik Copa America eftir nauman sigur á Peru í kvöld.

Leiknum lauk með 1-0 sigri Brasilíu en Lucas Paqueta skoraði markið eftir sendingu frá Neymar.

Þetta var annað mark Paqueta en hann tryggði Brasilíu farseðilinn í undan úrslitin með því að skora eina mark liðsins gegn Síle í 8-liða úrslitum.

Brasilía mætir annað hvort Argentínu eða Kolumbíu í úrslitaleiknum en þau lið mætast kl 1 eftir miðnætti á morgun. Peru mætir tapliðinu í leik um þriðja sætið.
Athugasemdir
banner