Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. júlí 2022 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Áslaug Munda nær nokkrum leikjum í viðbót á Íslandi
Áslaug Munda á landsliðsæfingu.
Áslaug Munda á landsliðsæfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir býst við því að spila eitthvað áfram með Breiðabliki eftir Evrópumótið.

Þessi öflugi leikmaður - og námsmaður - er í hinum virta Harvard háskóla þar sem hún sinnir krefjandi námi ásamt því að spila fótbolta.

Hún kom heim til Breiðabliks fyrir nokkrum vikum síðan og býst við að spila eitthvað áfram með liðinu áður en hún heldur aftur út. Það eru frábær tíðindi fyrir Blika sem eru meðal annars að fara að taka þátt í Meistaradeildinni á næstunni.

„Ég næ nokkrum leikjum með Breiðabliki áður en ég fer aftur út,” sagði Áslaug Munda í gær.

Næst á dagskrá hjá henni er samt sem áður Evrópumótið. Fyrsti leikur okkar þar er eftir fimm daga gegn Belgíu.
Áslaug Munda dekkaði Sveindísi: Það er ekki einfalt
Athugasemdir
banner
banner
banner