Decordova-Reid til Leicester (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Bobby Decordova-Reid landsliðsmaður Jamaíku er orðinn leikmaður Leicester en hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið.
Þessi 31 árs gamli sóknarmaður er fæddur og uppalinn á Englandi en hann hóf feril sinn hjá Bristol City. Hann var hjá Fulham frá 2020 en er nú genginn til liðs við Leicester.
„Ég átti gott spjall við stjórann. Hann sagði mér frá áformum félagsins. Ég spjallaði nokkrum sinnumvið hann, það var ljóst hvað hann vildi sjá frá mér," sagði De Cordova-Reid við undirskriftina.
Decordova-Reid var í landsliðshópi Heimis Hallgrímssonar í Jamaíku á Copa America á dögunum en Heimir hætti með liðið eftir að það féll úr leik í riðlakeppninni.
Bobby De Cordova-Reid is here! ? pic.twitter.com/tMPzm4k6y5
— Leicester City (@LCFC) July 6, 2024



