Fotbolti.net
06.07.24 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Skór Toni Kroos komnir upp í hillu (Staðfest) - „Nánast fullkominn“

Toni Kroos er hættur í fótbolta

Toni Kroos er hættur í fótbolta

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Toni Kroos spilaði sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum í gær er Þýskaland datt úr leik í 8-liða úrslitum Evrópumótsins. Kroos fer í sögubækurnar sem einn besti miðjumaður allra tíma.
Ferill Kroos spannaði tæpa tvo áratugi en hann hóf hann hjá Bayern München í heimalandinu.

17 ára gamall var hann farinn að skapa sér nafn í fótboltaheiminum en hann var valinn besti leikmaður HM U17 ára landsliða árið 2007, mót sem Þýskaland vann.

Sama ár fékk hann tækifærið í aðalliði Bayern. Um tíma var hann yngsti leikmaður til að spila fyrir félagið áður en David Alaba hirti metið þremur árum síðar.

Kroos var sendur til Bayer Leverkusen árið 2009 á átján mánaða lánssamningi til að þróa leik sinn betur. Tækifæri sem hann nýtti til hins ítrasta.

Eftir lánsdvölina var hann gerður að fastamanni í liði Bayern og var með þeirra bestu mönnum næstu fjögur árin þar sem hann fagnaði mörgum titlum, meðal annars Meistaradeild Evrópu.

Sumarið 2014 vann hann heimsmeistaramótið með Þjóðverjum og var valinn í lið mótsins. Magnaður árangur hjá 24 ára gömlum leikmanni, en eftir mótið var förinni heitið til Madríd.

Á tíu árum hans hjá Real Madrid vann hann Meistaradeildina fimm sinnum. Vann fjölda einstaklingsverðlaun og kom sér í umræðuna sem besti miðjumaður heims.

„Ég elska að horfa á Toni Kroos æfa. Þetta eru stórkostlegar æfingar og er stoltur að hafa þjálfað leikmann eins og Toni Kroos,“ sagði Zinedine Zidane, fyrrum þjálfari Madrídinga.

Kroos fékk meira að segja stórt hrós frá Johan Cruyff, fyrrum leikmanni Barcelona og hollenska landsliðsins, sem er af mörgum talinn einn sá allra besti í sögunni.

„Kroos er yndislegur leikmaður. Þessi strákur gerir allt rétt. Sendingarnar eru nákvæmar og hann sér allt. Toni er það sem kemst næst fullkomnun,“ sagði Cruyff.

Eftir að hann vann fimmta Meistaradeildarbikar sinn ákvað hann að hætta í fótbolta. Hann tjáði Real Madrid að þetta yrði hans síðasta tímabil, en hann vildi þó klára ferilinn með þýska landsliðinu á EM.

Frammistaða hans þar var allt í allt fín. Slakasta frammistaðan líklega í 8-liða úrslitunum gegn Spánverjum þar sem hann fékk endalausa sénsa hjá Anthony Taylor, dómara leiksins.

Einn besti fótboltamaður sögunnar hefur lagt skóna á hilluna og flest allir sem munu sakna þessa að horfa á hann dæla löngum sendingum í gegnum varnir liða.

Það verður mikill söknuður af honum en hvað hann ætlar að taka sér fyrir hendur næst er óráðið. Aldrei að vita nema við sjáum hann í þjálfun á næstu árum.

Skór Toni Kroos komnir upp í hillu (Staðfest) - „Nánast fullkominn“
Canon

Mynd: EPA

Skór Toni Kroos komnir upp í hillu (Staðfest) - „Nánast fullkominn“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.