Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 06. ágúst 2020 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin í dag - Wolves fær Olympiakos í heimsókn
Adama Traore og félagar mæta Olympiakos
Adama Traore og félagar mæta Olympiakos
Mynd: Getty Images
Það kemur í ljós í kvöld hvaða lið verða í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en Sevilla og Roma eigast við í hreinum úrslitaleik um sæti. Leikurinn fer fram á Schauinsland-Reisen-Arena í Þýskalandi.

Leik Roma og Sevilla var aflýst er kórónaveiran herjaði Evrópu og ákvað UEFA því að liðin myndu spila einn leik á hlutlausum velli til að úrskurða um hvaða lið færi áfram.

Bayer Leverkusen spilar við Rangers en Leverkusen vann fyrri leikinn í Skotlandi, 3-1. Basel mætir Frankfurt. Svissneska liðið vann öruggan 3-0 sigur í Þýskalandi í fyrri leiknum og því með gott veganesti inn í leikinn í kvöld.

Wolves á erfitt verkefni fyrir höndum en liðið mætir Olympiakos. Fyrri leikurinn fór 1-1.

Leikir dagsins:
16:55 Sevilla - Roma
16:55 Leverkusen - Rangers
19:00 Basel - Eintracht Frankfurt
19:00 Wolves - Olympiakos
Athugasemdir
banner
banner
banner