Montse Tome tekur við Spáni (Staðfest)

Tome var hluti af þjálfarateymi Spánar á HM.

Mynd: Getty Images

Spænska sambandið hefur ráðið Montse Tome til að taka við spænska kvennalandsliðinu af Jorge Vilda sem var rekinn úr starfi í gær.
Hún er fyrsta konan til að gegna þessu starfi fyrir spænska landsliðið.
Tome, sem er fyrrum landsliðskona, hefur verið í teyminu hjá Spáni síðustu fimm árin. Hún hefur aldrei verið aðalþjálfari áður en fær núna það tækifæri. Tome lék á sínum ferli með bæði Barcelona og Levante.
Þrátt fyrir að Spánn hafi unnið HM í sumar, þá er ýmislegt sem þarf að laga í kringum umhverfi liðsins.
Fyrsti leikur Tome við stjórnvölinn verður gegn Svíþjóð í Þjóðadeildinni síðar í þessum mánuði.