Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 06. október 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Víðir og Grindavík þurfa sigra
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Það eru aðeins tveir leikir á dagskrá í íslenska boltanum í dag. Þeir fara fram í sitthvorri annarri deildinni.

Í karlaflokki á Víðir heimaleik gegn Kára og þarf bráðnauðsynlega að sigra. Liðin mætast í síðasta leik 20. umferðar Íslandsmótsins.

Víðir er í fallsæti sem stendur, fjórum stigum frá öruggu sæti. Kári siglir lygnan sjó um miðja deild.

Í 2. deild kvenna á Grindavík leik við Fram sem hefur verið á fínni siglingu að undanförnu og aðeins tapað einum leik af síðustu sex.

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Grindvíkinga sem eru í harðri toppbaráttu.

Grindavík getur tekið toppsæti deildarinnar af HK með því að sigra báða síðustu leiki tímabilsins, en liðið á einnig hættu á að missa 2. sætið til sameinuðu Austfirðinganna í Fjarðabyggð/Hetti/Leikni F.

2. deild karla
15:30 Víðir-Kári (Nesfisk-völlurinn)

2. deild kvenna
15:30 Grindavík-Fram (Grindavíkurvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner