„Bjóst ekki við því að Gylfi yrði í hópnum í þessum glugga"

Gylfi Þór er mættur aftur í hópinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Åge og Aron Einar ræða saman.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Lucas hefur skorað í fimm síðustu leikjum sínum.

Mynd: Getty Images

Gylfi Þór er mættur aftur í hópinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið kemur saman á mánudag. Framundan eru tveir leikir í undankeppni EM2024; heimaleikir gegn Lúxemborg og Liechtenstein.
Það vakti athygli að í landsliðshópnum hjá Age Hareide eru þeir Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson. Aron hefur ekki spilað síðan í vor og Gylfi hefur einungis spilað um 20 mínútur eftir endurkomu sína.
Það vakti athygli að í landsliðshópnum hjá Age Hareide eru þeir Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson. Aron hefur ekki spilað síðan í vor og Gylfi hefur einungis spilað um 20 mínútur eftir endurkomu sína.

TENGT EFNI
Landsliðshópurinn: Gylfi valinn (Staðfest) - Aron í hópnum
Fótbolti.net fékk Kjartan Henry Finnbogason, aðstoðarlýsanda og sérfræðing, til að svara þremur spurningum í tengslum við landsliðið.
Segir bara til hvenær hann er klár
Hvað finnst þér um að Gylfi sem hefur spilað einungis spilað 20 mínútur á síðustu tveimur árum sé valinn í hópinn? Aron Einar hefur ekki spilað síðan í vor er líka valinn, hefuru einhverja skoðun á því?
„Ég get alveg viðurkennt það að ég bjóst ekki við því að Gylfi yrði í hópnum í þessum glugga. Vegna þess einmitt hversu lítið hann hefur spilað síðan að hann kom til Lyngby. En ég held að þetta sé fín tímasetning að koma honum aftur inn, það er mikið 'presence' í að fá hann inn í tiltölulega ungan leikmannahóp og það gerir þetta verkefni bara ennþá meira spennandi fyrir alla sem að koma að því."
„Það er auðvitað hrikalega mikill missir í Jóa Berg sem að spilaði 90 mínútur í báðum leikjum síðast."
„Aron Einar er svo einhvernvegin andlit og fyrirliði liðsins þannig að hann segir bara til hvenær hann er klár, og tilbúinn í að gefa af sér."
Nýta sér sjóðheitan Andra Lucas
Kom þér eitthvað (annað) á óvart í valinu á hópnum?
„Nei, ég get ekki sagt það, Hörður meiðist og inn kemur Sverrir Ingi. Arnór Sig er búinn að byrja virkilega vel í mjög erfiðri deild og á klárlega að vera þarna og svo er ekkert sem að fær stöðvað Andra Lucas í Danmörku þannig að um að gera að nýta sér það 'momentum'."
Leikir sem þarf að vinna en kannski meira horft í umspilið
Hvernig finnst þér þróunin á landsliðinu undir stjórn Age hafa verið?
„Erfitt að tala um þróun, en þetta hefur verið upp og niður finnst mér, Allt í lagi ekki gott. Eins og einhver sagði."
„Leikirnir í júní hér heima voru mjög fínar frammistöður án þess þó að gefa stig, en svo var þessi svarti blettur í Lúxemborg þar sem að liðið bara hrundi saman. Alfreð reddaði okkur svo gegn Bosníu. En mér finnst ég hafa séð frá fyrsta leik mikið 'passion' í Åge á hliðarlínunni, hann stendur mikið og öskrar á menn og sýnir allaveganna að honum er ekki sama. Við erum með ungt og spennandi lið og þessir leikir núna í október eru algjörir 'must win' leikir. Þó að við séum kannski meira að horfa í þetta umspil í gegnum Þjóðadeildina í mars."

Åge og Aron Einar ræða saman.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Lucas hefur skorað í fimm síðustu leikjum sínum.

Mynd: Getty Images





