Fotbolti.net
06.10.23 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Staðfestir að Bói sé á förum frá KA - Ekki rætt við Atla Svein

Hólmar Örn.

Hólmar Örn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hólmar Örn Rúnarsson, Bói, verður ekki áfram í þjálfarateymi KA en þetta staðfesti Hallgrímur Jónasson, þjálfari liðsins, í samtali við Fótbolta.net í gær.

Hólmar hefur verið orðaður við Keflavík núna seinni hluta sumars. Þar myndi hann vinna með Haraldi Frey Guðmundssyni, núverandi þjálfara liðsins. Hólmar var 2022 þjálfari Njarðvíkur ásamt Bjarna Jóhannssyni. Hann var svo ráðinn inn í teymið hjá KA í nóvember á síðasta ári.
„Það verða breytingar á teyminu, eins og staðan er núna þá er Bói, því miður, að fara frá okkur. Við erum ótrúlega ánægðir með hans störf, bæði í meistaraflokki og í yngri flokkunum. Hann og Egill í 2. flokki gerðu vel, fóru upp í A-deild, spiluðu flottan fótbolta, stóðu sig vel og hann er gríðarlega vel liðinn hjá okkur í teyminu. Það verður missir af honum," sagði Haddi.

„Þetta gekk ekki upp út af fjölskylduástæðum; það var erfitt að finna íbúð sem hentaði. Það var reynt, en gekk bara ekki upp. Fjölskyldan vildi því fara aftur heim og stefnir á að búa í Keflavík."

„Nákvæmlega hvernig breytingarnar verða; hver kemur inn, það er ekkert komið af stað."


Atli Sveinn Þórarinsson hefur verið orðaður við aðstoðarþjálfarastarfið hjá KA. Hefur Haddi rætt við hann?

„Nei. Við erum bara ekki komnir það langt að við séum farnir að tala við menn. Við þurfum fyrst að klára hlutina hjá okkur og sjá hvar vantar. Atli Sveinn kemur alveg til greina í það mengi sem við viljum skoða, en ég er ekkert búinn að heyra í honum," sagði Haddi.

Haddi: Þurfum að fara yngja upp
TENGT EFNI

Haddi: Þurfum að fara yngja upp

Atli Sveinn.

Atli Sveinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.